Erasmus+ málstofa um geðheilsu í nám og þjálfunar verkefnum

Umsóknarfrestur liðinn

Heiti viðburðar: Health E+Motions – International Seminar on Mental Health health in short and long-term international mobility projects

Fyrir: Erasmus+ verkefnastjóra með reynslu af verkefnum í nám og þjálfun. Verkefnastjórar úr öllum hlutum Erasmus+ geta sótt um.

Tungumál: Enska

Hvar: Varsjá, Póllandi

Hvenær: 15.-18. október 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 21. júní 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Þema málstofunnar er geðheilsa þátttakenda í Erasmus+ nám og þjálfunar verkefnum og er markmiðið að Erasmus+ verkefnastjórar auki skilning sinn á hvernig megi huga betur að geðheilsu þátttakenda í verkferlum sínum.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 3

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica