Erasmus+ tengslaráðstefna um KA220 samstarfsverkefni

Umsóknarfrestur til og með 4. september 2024

Heiti viðburðar: Transnational contact seminar, KA220 Cooperation Partnerships: Idea development and exploring partnerships

Fyrir: Starfsfólk stofnana í skóla-, starfsmenntunar- eða háskólahluta, sem hefur reynslu af Erasmus+ verkefnum og vill taka þátt í stærri samstarfsverkefnum.

Tungumál: Enska

Hvar: Bergen, Noregi

Hvenær: 6.-8. nóvember 2024

Umsóknarfrestur: Til og með 4. september 2024

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið ráðstefnunnar er að veita mögulegum umsækjendum um stærri samstarfsverkefni stuðning við hugmyndavinnu og tengslamyndun sín á milli.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 3

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica