Umsóknarfrestur liðinn
Heiti viðburðar: Data Protection and the Ethics of Data Collection in Erasmus+ Projects
Fyrir: Starfsfólk við háskólastofnanir
Tungumál: Enska
Hvar: Bonn, Þýskalandi
Hvenær: 31. janúar til 2. febrúar 2024
Umsóknarfrestur: Til og með 31. október 2023
Þema ráðstefnunnar er meðhöndlun gagna með tilliti til persónuverndarlaga.
Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 3
Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.
Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is