Í eTwinning samstarfi er lagt er upp með einfaldleikann s.b. einkunnarorðin „hafið það lítið og einfalt“ ( keep it short and simple—KISS). Engar reglur eru um hvernig verkefni eiga að vera – þau geta varað í stuttan eða langan tíma, farið í gang hvenær sem er á skólaárinu og þátttakendur geta verið fleiri eða færri (tveir stofna verkefnið og geta boðið fleirum með). Verkefnin geta því verið hvernig sem er svo lengi sem þau er hluti af kennslunni og falla að námsskrá og uppeldismarkmiðum skólans.
eTwinning verkefnin geta breytt skólastarfinu og auðgað á margan hátt, víkkað sjóndeildarhring bæði nemenda og kennara og aukið færni þeirra á ýmsa vegu. Allar námsgreinar eru gjaldgengar og auðveldlega má tengja samstarfið inn í margar námsgreinar. Reynslan sýnir að þátttaka í eTwinning samstarfi eflir starfsþróun kennara og áhuga og áræðni nemenda. Hvert verkefni fær svæði til að halda utan um samstarfið (TwinSpace) öruggt svæði fyrir kennara og nemendur .
Venjulega eru eTwinning verkefni samstarf a.m.k. tveggja Evrópulanda – til að teljast Evrópuverkefni og eiga kost á evrópskum gæðaviðurkenningum verður svo að vera. Hins vegar er einnig hægt að stofna til eTwinning samstarfs innanlands, þ.e. með öðrum íslenskum skóla.
Eins og segir að ofan ræður fólk því hvernig verkefnið lítur út. Þó er hægt að benda á nokkrar þumalputtareglur:
Með samsíða vinnu er átt við að skólarnir geri það sama í sitt hvoru lagi og sýni hinum afraksturinn. Þarna eru hinir í verkefninu fyrst og fremst áhorfendur að því sem þið gerið. Samsíða vinna getur auðvitað átt við – það fer eftir eðli verkefnisins – en ef það er hægt að byggja verkefnið á samvinnu er það kostur.
Með samvinnu er átt við að skólarnir vinni saman að viðfangsefnum. Til dæmis:
Í samvinnu eru hinir í verkefninu virkir en ekki aðeins áhorfendur.
Ertu að hugsa um að taka þátt í samstarfsverkefni eTwinning? Skoðaðu verkefnapakka til að fá hugmynd að verkefni sem hentar þér og þínum skóla.