EPALE - Vefgátt fullorðinsfræðslu í Evrópu
Fyrir hverja?
Fagaðila í fullorðinsfræðslu, hagsmunaaðila, símenntunarmiðstöðvar og stefnumótunaraðila.
Til hvers?
EPALE er vefgátt þar sem fagfólk í fullorðinsfræðslu getur bloggað, deilt fréttum og auglýsingum um viðburði og sótt efni í gagnabanka.
EPALE vefgáttin veitir aðgang að lokuðum, gagnvirkum vefsvæðum þar sem hægt er að láta álit sitt í ljós, taka þátt í umræðum og eiga frumkvæði að umræðu um ýmis viðfangsefni.
Hvað er EPALE?
- Vefgátt um fullorðinsfræðslu fyrir Evrópulönd á 32 tungumálum, þar á meðal íslensku
- Viðburðadagatal, fréttaveita, blogg og gagnasafn
- Stuðningur við fullorðinsfræðsluaðila
- Vettvangur til að deila sérþekkingu og læra hvert af öðru
- Stutt kynningarmyndband um EPALE
Hvert er markmiðið?
Meginmarkmiðið með Epale er að efla samskipti fagfólks sem sér um fullorðinsfræðslu í Evrópu með það að markmiði að efla gæði formlegrar og óformlegrar menntunar fullorðinna.
Á EPALE vefgáttinni er hægt að:
- Finna viðburði, ráðstefnur, námskeið, vefnámskeið o.fl.
- Skrá eigin viðburði til að fá erlenda þátttakendur
- Sækja faglegan fróðleik og fylgjast með
- Blogga á lokuðu vefsvæði og deila fróðleik
- Hafa áhrif á þróun vefgáttarinnar (viðhorfskannanir)
- Finna samstarfsaðila í verkefni
Hlutverk Rannís
Rannís er tengiliður fyrir EPALE á Íslandi (NSS – National Support Service).
Hlutverk RANNÍS er að miðla efni milli íslenskra og evrópskra fagaðila í fullorðinsfræðslu á vefgátt EPALE, hvetja fagaðila til að skiptast á skoðunum þar, skrá viðburði eða vekja athygli á því sem er til fyrirmyndar í fullorðinsfræðslu hér á landi.
Ef þú vilt miðla einhverju eða ert með hugmyndir um slíkt efni, hvetjum við þig til að senda okkur póst á epale@rannis.is
Myndband um raunfærnimat
Þetta myndband má finna hér á ensku: Video on validation on prior learning
Viðtal við Önnu Margréti og Lindu um Epale
Þetta myndband má vinna hér á ensku: Interview with Anna Margrét and Linda.EPALE verkefnið er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun
ESB. Innihald þessa vefs endurspeglar
eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á
því hvernig af honum eru nýttar.
Epale Útgefið efni
epale vefgáttin
Á EPALE vefgáttinni getur þú skráð þig sem notanda, tekið þátt í faglegum umræðum, leitað að samstarfsaðilum eða fundið spennandi námskeið eða ráðstefnur.Fylgstu með Epale
- Facebook: EPALE Ísland.
- Twitter: @EPALE_IS
- Skrá mig á fréttabréfslista (veldu Fullorðinsfræðsla).