Lögaðilar og stofnanir sem starfa á sviði fullorðinsfræðslu geta sótt um náms- og þjálfunarstyrki fyrir nemendur sína og starfsfólk.
Til hvers?
Umsóknarflokkar náms- og þjálfunarverkefna eru tveir, þ.e. Erasmus+ aðild og Erasmus+ skammtímaverkefni.
Erasmus+ aðild (accredited projects for mobiltiy of learners and staff in adult education and training)
Stofnanir sem eru með Erasmus aðild geta sótt um námsferðir og starfsþjálfun fyrir nemendur og starfsfólk. Umsóknir eru byggðar á áður samþykktri Erasmus áætlun þannig að ekki er krafist nákvæmrar framkvæmdaáætlunar, heldur er áhersla lögð á umfang alþjóðastarfs á tímabili verkefnisins. Úthlutun til einstakra stofnana/samtaka byggir á eftirfarandi atriðum:
Heildarupphæð úthlutaðs fjármagns til náms- og þjálfunarverkefna í fullorðinsfræðslu
Umsókn og áætlun hverrar stofnunar/samtaka
Grunnstyrk og hámarksstyrk hverrar stofnunar/samtaka
Árangri hverrar stofnunar/samtaka varðandi nýtingu fjármagns, framkvæmd verkefna og stuðningi við áhersluatriði Erasmus+ áætlunarinnar um inngildingu, umhverfismál og stafræna kennsluhætti.
Gildistími verkefna: 15 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+ og önnur lönd
Stofnanir sem hafa staðfesta Erasmus+ aðild geta einnig sótt um samstarfsnet og verkefni fleiri skóla/stofnana/ fyrirtækja.
Erasmus+ skammtímaverkefni (short term mobility projects)
Þeir sem ekki hafa Erasmus+ aðild geta sótt um námsferðir og starfsþjálfun sinna nemenda og starfsfólks.
Skammtímaverkefni eru góður kostur fyrir stofnanir sem eru að sækja um í fyrsta sinn og ekki stefna að reglulegri þátttöku í áætluninni heldur vilja sækja um af og til. Aðeins er hægt að sækja um stök verkefni þrisvar sinnum á fimm ára tímabili.
Gildistími verkefna: 6 – 18 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+
Aðrar leiðir til þátttöku í Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefnum
Nemendur:
Erasmus+ veitir nemendum tækifæri til að fara í náms- og þjálfunarferðir hjá samstarfsaðilum sendistofnunar. Dvölin verður að eiga sér stað í einu af þátttökulöndum Erasmus+ og skulu nemendur vera skráðir í nám hjá fullorðinsfræðslustofnun sem sendir þau utan. Nemendaferðir skiptast annars vegar í skemmri hóp- eða einstaklingsferðir þar sem kennarar þurfa að fylgja hópnum allan tímann og hins vegar í lengri einstaklingsferðir. Við val á þátttakendum skal leggja áherslu á inngildingu og ávalt velja fjölbreyttan hóp nemenda til að senda utan.
Rík áhersla er lögð á gæði þjálfunar nemenda og ber að fylgja viðmiðum gæðaviðmiða Erasmus+ (Quality Standards). Í því sambandi ber að framfylgja ákveðnu ferli við undirbúning og framkvæmd ferða. Gerður er samningur við þátttakendur og samkomulag við móttökuaðilann um þjálfun. Að dvöl lokinni skal móttökuaðilinn staðfesta dvöl og lærdóm.
Tækifæri nemenda sem eru í námi hjá fullorðinsfræðslustofnun eru eftirfarandi:
Nám og þjálfun fyrir nemendahópa (Group mobility of adult learners)
Dvalarlengd 2 – 30 dagar; lágmarksfjöldi nemenda í hverjum hópi: 2
Skemmri dvöl – Nám/þjálfun hjá samstarfsstofnun
(Short-term learning mobility of adult learners)
Dvalarlengd 2 – 29 dagar
Lengri dvöl – Nám/þjálfun hjá samstarfsstofnun
(Long-term learning mobility of adult learners)
Dvalarlengd: 30 dagar – 12 mánuðir
Tækifæri starfsfólks í fullorðinsfræðslu eru eftirfarandi:
Starfsspeglun (Job shadowing)
Dvalarlengd: 2 – 60 dagar
Fagtengd námskeið og þjálfun (Courses and training)
Dvalarlengd: 2 – 30 dagar (ath. að styrkur námskeiðsgjalds er takmarkaður við 10 daga)
Gestakennsla í stofnunum í öðru landi (Teaching or training assigments)
Dvalarlengd: 2 dagar – 12 mánuðir
Móttaka sérfræðinga frá stofnunum annarra landa (Invited Experts)
Dvalarlengd: 2 – 60 dagar
Móttaka kennara- og leiðbeinendanema frá stofnunum annarra landa
(Hosting teachers and educators in training)
Dvalarlengd: 10 dagar – 12 mánuðir
Undirbúningsheimsóknir sem farnar eru til að skipuleggja ákveðnar ferðir nemenda og starfsfólks með það að markmiði að auka gæði t.d. lengri dvalar, ferðir þátttakenda með minni möguleika á þátttöku o.fl. Hámarksfjöldi þátttakenda hverrar ferðar eru þrír.
Til þess að tryggja jöfn réttindi er mögulegt að sækja um sérstaka styrki fyrir þátttakendur sem hafa minni möguleika til þátttöku. Um er að ræða styrki fyrir fylgdarmenn og vegna nauðsynlegs viðbótarkostnaðar. Þeir sem hafa Erasmus+ aðild geta sótt um viðbótarstyrk vegna þeirra sem hafa minni möguleika á þátttöku á verkefnistímanum.
Markmið náms- og þjálfunarverkefna á sviði fullorðinsfræðslu er að styðja við þátttöku íslenskra fullorðinsfræðsluaðila í alþjóðlegu samstarfi sem hafa það hlutverk að auka færni og hæfni fullorðinna til atvinnuþátttöku.
Einungis fullorðinsfræðslustofnanir og aðilar sem sinna skipulagningu fullorðinsfræðslu geta sótt um styrki.
Aðilar sem geta sótt um aðild/styrk í fullorðinsfræðslu Erasmus+ áætlunarinnar geta m.a. verið:
Skilyrði (1): fræðsluaðilar sem bjóða nám á sviði fullorðinsfræðslu.
Nám sem telst styrkbært í Erasmus | Dæmi um framkvæmdaraðila |
Námskeiðahald í fullorðins- og framhaldsfræðslu | Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og aðrir fræðsluaðilar |
Náms- og starfsráðgjöf í fullorðins- og framhaldsfræðslu | Viðurkenndir fræðsluaðilar: Fræðsluaðilar sem hlotið hafa formlega viðurkenningu ráðuneytisins og annast raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og námskeiðahald í framhaldsfræðslu |
Raunfærnimat | Viðurkenndir fræðsluaðilar: Fræðsluaðilar sem hlotið hafa formlega viðurkenningu ráðuneytisins og annast raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og námskeiðahald í framhaldsfræðslu |
Formleg grunn- og framhaldsfræðsla fyrir fullorðna byggð á vottuðum námskrám | Símenntunarmiðstöðvar og aðrir viðurkenndir fræðsluaðilar |
Formleg framhaldsfræðsla fyrir fullorðna innflytjendur | Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar |
Óformlegt nám í fullorðinsfræðslu skipulagt og framkvæmt af hæfum leiðbeinendum | Félags- eða þjónustumiðstöðvar, ýmis félagasamtök, bókasöfn, háskólar fyrir fólk á þriðja aldursskeiði, lýðskólar, opnir háskólar, einkaaðilar, stéttarfélög og aðrar stofnanir sem bjóða upp á sérnámsnámskeið (t.d. í tungumálum, stafrænni færni eða annarri lykilhæfni) |
Óformleg fræðsla og þjálfun fyrir einstaklinga með minni möguleika í samfélaginu (s.s. fólk með fötlun, farandverkamenn, aldraðir eða fátækir) | Menningarmiðstöðvar, bókasöfn, söfn, leikhús, tónlistar- og listasamtök, foreldrafélög, félagasamtök, mannúðarsamtök, fagfélög |
Áætlanir um félagslega aðlögun eða lífsleikni einstaklinga sem afplána eða hafa afplánað refsidóma eða verið dæmdir fyrir afbrot | Fangelsi og aðrar betrunarstofnanir, veitendur félagsþjónustu, félagasamtök, mannúðarsamtök |
Skilyrði (2): Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar, stofnanir og hagsmunaaðilar sem hafa formlegt hlutverk á sviði fullorðinsfræðslu
Hlutverk innan menntakerfis | Dæmi um framkvæmdaraðila |
Að stofna og hafa umsjón með fullorðinsfræðslustofnunum | Sveitarfélög, ríkisstofnanir og aðrir opinberir aðilar |
Þjálfun, ráðning og stjórnun starfsfólks í fullorðinsfræðslu | Menntayfirvöld, háskólar, fræðsluaðilar á vegum aðila vinnumarkaðar |
Að skilgreina og innleiða námsáætlun fullorðinna á öllum stigum | Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar |
Stjórnun og gæðaeftirlit með framkvæmd fullorðinsfræðslu | Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar |
Skilgreina hæfniramma, staðla og tækifæri fyrir samfellda fagmenntun sem veitir fullorðinsfræðslu | Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar í samráði við hagsmunaaðila |
Veita kennurum og leiðbeinendum í fullorðinsfræðslu faglegan stuðning og handleiðslu | Háskólar, símenntunarstöðvar og fagfélög kennara og leiðbeinenda |
Veita náms- og starfsráðgjöf, fagráðgjöf og sálfræðilegan stuðning fyrir fullorðna nemendur | Náms- og starfsráðgjafar, verkalýðsfélög, símenntunar-, þjónustu- og félagsmiðstöðvar, mannúðarsamtök, félagasamtök, samtök sem veita sálfræðistuðning fyrir fullorðna |
Umsýslustyrkur
Kostnaður tengdur framkvæmd verkefnisins t.d. undirbúningur, stuðningur, eftirfylgni, staðfesting dvalar og kynning niðurstaðna. Styrkurinn miðast við fjölda þátttakenda og tegund ferða.
Flokkur | Upphæð |
|
EUR 125 fyrir hvern þátttakanda EUR 100 fyrir hvern þátttakanda |
|
EUR 350 fyrir hvern þátttakanda |
|
EUR 500 fyrir hvern þátttakanda |
Ferðastyrkur
Stuðningur við ferðakostnað þátttakenda og fylgdarmanna. Miðað er við ferðir báðar leiðir. Við ákvörðun fjarlægðar þarf að nota “distance calculator” og miða við beina línu frá upphafsstað til áfangastaðar. Ferðastyrkur umhverfisvænna ferða er veittur þegar þátttakandi hefur valið vistvænni ferðamáta en flug. Green Travel á hins vegar aðeins við ef lengsti ferðaleggur í km. er grænn ferðamáti og á þess vegna sjaldan við um ferðalög frá Íslandi.
Fjarlægð | Hefðbundinn ferðastyrkur | Ferðastyrkur umhverfisvænna ferða (Green travel) |
10-99 km | 28 EUR | |
100 – 499 km | 211 EUR | 285 EUR |
500 – 1999 km | 309 EUR | 417 EUR |
2000 – 2999 km | 395 EUR | 535 EUR |
3000 – 3999 km | 580 EUR | 785 EUR |
4000 – 7999 km | 1188 EUR | 1188 EUR |
8000 km eða meira | 1735 EUR | 1735 EUR |
Uppihaldsstyrkur
Stuðningur við uppihaldskostnað þátttakenda og fylgdarmanna þeirra meðan á dvölinni stendur.
Miðað er við dvalartíma og að hámarki 2 ferðadaga, nema þegar veittur er umhverfisvænn ferðastyrkur en þá geta ferðadagar verið allt að 6. Neðangreindar upphæðir miða við einn dag og gilda fyrir dag 1 – 14. Frá degi 15 og til loka dvalar er styrkupphæðin 70% þessara upphæða.
Þátttakandi | Landahópur 1 | Landahópur 2 | Landahópur 3 |
Starfsfólk | 191 EUR | 169 EUR | 148 EUR |
Nemendur | 127 EUR | 110 EUR | 93 EUR |
Landahópur 1: Austurríki, Belgía, Frakkland, Danmörk, Finnland, Holland, Ísland, Írland, Ítalía, Liechtenstein, Luxemborg, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland
Landahópur 2: Eistland, Grikkland, Kýpur, Lettland, Malta, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Tékkland
Landahópur 3: Búlgaría, Króatía, Litháen, Norður Makedónía, Pólland, Rúmenía, Serbía, Tyrkland, Ungverjaland
Landahópar v/annarra landa sjá handbók
Stuðningur vegna inngildingar (inclusion)
Sýna þarf fram á að raunveruleg þörf sé á viðbótarstyrk vegna þátttöku viðkomandi.
Viðbótarstyrkur vegna undirbúnings og skipulagningar dvalar fólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+ | 125 EUR fyrir hvern þátttakanda |
Styrkur vegna raunverulegs viðbótarkostnaðar vegna þátttöku nemenda og starfsfólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+ | 100% raunverulegs kostnaðar |
Undirbúningsheimsóknir
Styrkur vegna ferða og uppihalds | 680 EUR fyrir hvern þátttakanda. Hámarksfjöldi þátttakenda í hverri ferð eru þrír. |
Námskeiðsgjöld
Styrkur vegna námskeiðsgjalds | 80 EUR fyrir hvern þátttakanda á dag. Hámarksstyrkur fyrir hvern þátttakanda eru 800 EUR |
Stuðningur vegna tungumálaundirbúnings
Styrkur vegna tungumálastuðnings þátttakenda vegna tungumála sem ekki eru í boði í OLS tungumálakerfinu. Gildir um nemendur sem fara erlendis í skemmri og lengri dvöl og starfsfólk sem fer í starfsspeglun og gestakennslu. | 150 EUR fyrir hvern þátttakanda |
150 EUR viðbótarstyrkur fyrir nemendur sem fara í lengri námsddvöl |
Styrkur vegna sérstaklega kostnaðarsamra ferða
Viðbótarstyrkur er veittur vegna ferða frá svæðum sem talin eru afskekkt og ferðakostnaður því mikill | Styrkurinn byggir á raunkostnaði og er að hámarki 80%. |
Umsækjendur verða sjálfir að finna sína samstarfsaðila og eru upplýsingar um þá hluti af umsókn. Mikilvægt er að vanda vel val samstarfsaðila og kynna sér þeirra reynslu og fagsvið.
Hægt er að leita á vefsvæði EPALE að samstarfsaðilum
Lögaðilar í þátttökulöndunum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Einnig er mögulegt er að vinna með aðilum í löndum utan Evrópu, þ.m.t. Bretland. Þeir geta ekki leitt verkefni en geta verið fullgildir samstarfsaðilar.