Samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu

Fyrir hverja?

Fullorðinsfræðsluaðilar, sem og aðrir lögaðilar, s.s. fyrirtæki, aðilar vinnumarkaðar, háskólar og rannsóknastofnanir geta sótt um styrki til að stuðla að nýbreytni og framþróun í fullorðinsfræðslu. 

Til hvers?

Samstarfsverkefni veita fullorðinsfræðslustofnunum og öðrum aðilum tækifæri til að öðlast reynslu af alþjóðlegu samstarfi og efla hæfni starfsmanna sinna. Einnig geta verkefnin snúist um að þróa eða yfirfæra aðferðir eða leiðir í fullorðinsfræðslu þar sem áhersla er lögð á nýbreytni og gæði. 

Styrkt verkefni skulu taka mið af stefnumörkun Evrópusambandsins í fullorðinsfræðslu. Þau geta verið mismunandi að stærð og gerð og geta meðal annars snúið að því að auka gæði kennslu og annarrar starfsemi á sviði fullorðinsfræðslu.

Í boði eru tvær tegundir verkefna:  

  • Stærri samstarfsverkefni (Cooperation Partnerships)  

  • Smærri samstarfsverkefni (Small-scale Partnerships). 

Sótt er um rafrænt á Erasmus+ og ESC torginu.
Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið á síðunni Leiðbeiningar fyrir umsækjendur.

Hvert er markmiðið?

Samstarfsverkefnum sem styrkt verða er sérstaklega ætlað að styðja við áherslur Evrópusambandsins á sviði menntunar og æskulýðsstarfs.

Markmið samstarfsverkefna (Cooperation Partnerships og Small-Scale Partnerships)

  • Að auka gæði framkvæmdar samstarfsaðilanna í verkefninu og deila nýjungum með öðrum, þvert á fag- og starfsgreinar.

  • Að styrkja stofnanir sem vinna þvert á landamæri og á milli mismunandi skólastiga og fagreina.  

  • Að mæta sameiginlegum þörfum og forgangsatriðum á sviði menntunar, þjálfunar og æskulýðsstarfs.

  • Að stuðla að framförum (hjá einstaklingum, stofnunum eða innan einstakra geira) sem leiða til umbóta og nýrra aðferða . 

Í minni samstarfsverkefnum (Small-Scale Partnerships) er að auki stefnt að eftirfarandi atriðum:

  • Að auka tækifæri og hvetja til þátttöku nýliða, þeirra sem hafa litla reynslu af því að taka þátt í evrópsku samstarfi og smærri aðila. Þessi verkefni geta verið fyrstu skref Evrópusamstarfs.
  • Að styðja við markmið inngildingar og þátttöku fólks sem hefur færri tækifæri.
  • Að styðja við markmið um virka þátttöku í samfélaginu og að færa Evrópskar áherslur að nærsamfélaginu.

Öll samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu þurfa sömuleiðis að styðja við a.m.k. eitt af þeim forgangsatriðum sem ákveðin hafa verið fyrir fullorðinsfræðslu og/eða eitt forgangsatriði sem ákveðið hefur verið þvert á öll skólastig/æskulýðsstarf.  

Forgangsatriði

Öll samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu þurfa að styðja við a.m.k. eitt af þeim forgangsatriðum sem ákveðin hafa verið fyrir fullorðinsfræðslu og/eða eitt forgangsatriði sem ákveðið hefur verið þvert á öll skólastig/æskulýðsstarf.

Fyrir umsóknarfrest 2025 hafa verið skilgreind eftirfarandi forgangsatriði fyrir samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu:

  • Að auka notkun og bæta inngildingu og aðgengi í fullorðinsfræðslu
  • Að auka framboð á hágæða, sveigjanlegu og viðurkenndu námi fyrir fullorðna
  • Að auka veg staðbundinna námsmiðstöðva og nýstárlegra námsrýma
  • Að búa til brautir til uppbyggingar og endurmenntunar
  • Að bæta og auka hæfni kennara og annars starfsfólks í fullorðinsfræðslu
  • Að skapa og efla námstækifæri meðal allra borgara og kynslóða
  • Að auka tryggingu gæða í námi fyrir fullorðna
  • Að styðja evrópsk mennta- og þjálfunarkerfi í viðbrögðum þeirra við stríðsátökum í Úkraínu

Athugið að nauðsynlegt er að skoða vel hvert forgangsatriði í Erasmus+ handbókinni (Programme Guide) þar sem þau eru útskýrð nánar. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um viðmið um mat á umsóknum (award criteria).

Almenn forgangsatriði Erasmus+ áætlunarinnar sem gilda um öll skólastig og æskulýðsstarf (horizontal priorities) snúa að því að tryggja aðgengi allra að áætluninni, umhverfisvænu alþjóðastarfi, aukinni starfrænni þróun og færni, sem og sameiginlegum gildum og borgaralegri þátttöku.

Hverjir geta sótt um?

Einungis lögaðilar í þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar geta sótt um styrki til að vinna að samstarfsverkefnum. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur, auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Stofnanir og samtök frá löndum á svæðum 1-3 (fyrir utan Belarús) geta tekið þátt en ekki verið umsækjendur.

Aðilar/stofnanir sem sinna fullorðinsfræðslu geta m.a. verið:

  • Fullorðinsfræðslustofnanir sem sinna ólíkum markhópum, s.s. fötluðum einstaklingum.

  • Háskólar sem sinna endur- og símenntun.

  • Lítil og meðalstór fyrirtæki.

  • Aðilar vinnumarkaðar, s.s. samtök aðila iðnaðar, atvinnulífs og launþega.

  • Opinberir aðilar, t.d. á sveitarstjórnarstigi.

  • Rannsóknarstofnanir.

  • Stofnanir sem eru ekki reknar í ábataskyni, s.s. félagasamtök.

  • Bókasöfn og menningarstofnanir.

  • Stofnanir sem sinna náms- og starfsráðgjöf.

Einstaka stofnanir geta tekið þátt í mest 10 umsóknum um stærri samstarfsverkefni í hverjum umsóknarfresti. Í smærri samstarfsverkefnum geta einstaka stofnanir aðeins tekið þátt í fimm umsóknum í hverjum fresti. Með þátttöku í verkefnum er átt við bæði umsækjendur og samstarfsaðila.

Hvað er styrkt? 

Styrkir til samstarfsverkefna eru veittir í formi fastrar upphæðar (lump sum) og umsækjendur geta sótt um eftirfarandi upphæðir

Verkefnaflokkur Styrkupphæð
(lump sum)
Smærri samstarfsverkefni
(Small scale partnerships)
30.000 EUR
60.000 EUR
Stærri samstarfsverkefni
(Cooperation Partnerships)
120.000 EUR
250.000 EUR
400.000 EUR

Allir verkefnastyrkir Erasmus+ eru stuðningur og gera ráð fyrir mótframlagi aðila verkefnisins. Í umsókninni er ekki farið fram á að mótframlag sé útskýrt í smáatriðum heldur þarf áætlaður kostnaður við framkvæmd verkefnisins að vera hærri en styrkupphæðin sem sótt er um.

Við gerð fjárhagsáætlunar ber að hafa í huga að ef hún er metin óraunhæf verður að hafna umsókninni. Við afgreiðslu umsókna er ekki hægt að lækka styrkupphæð sem sótt er um.

Styrkupphæðin snýr að þeim verkþáttum sem leyfilegir eru í Erasmus+ samstarfsverkefnum:

  • Verkefnisstjórn (áætlanagerð, fjármál, samskipti og samhæfing milli samstarfsaðila, eftirfylgni, umsjón o.s.frv)
  • Námsviðburðir (learning activities)
  • Kennslu- og þjálfunarviðburðir (teaching and training activities)
  • Fundir og viðburðir
  • Afurðir verkefnisins (útgefið efni, skjöl, verkfæri, afurðir o.s.frv)
  • Miðlun á niðurstöðum og afurðum verkefnisins

 

Stærri samstarfsverkefni (Cooperation Partnerships) geta varað í 12 – 36 mánuði

Lágmarksfjöldi samstarfsaðila eru þrír aðilar frá þremur þátttökulöndum Erasmus+. Stofnanir og samtök frá löndum á svæðum 1-3 (fyrir utan Belarús) geta tekið þátt en ekki verið umsækjendur.

Einstaka stofnanir geta tekið þátt í mest 10 umsóknum um stærri samstarfsverkefni í hverjum umsóknarfresti, hvort heldur er sem umsækjendur eða samstarfsaðilar.

Styrkt verkefni skulu taka mið af stefnumörkun Evrópusambandsins í fullorðinsfræðslu og geta m.a. snúið að því að auka gæði í fullorðinsfræðslu, auka aðgang að fjölbreyttum, vönduðum námsleiðum og endurmenntun bæði nemenda og kennara. Einnig að vinna að nýjum lausnum og aðferðum miðað við þarfir greinarinnar. 

Smærri samstarfsverkefni (Small-Scale) geta varað í 6 - 24 mánuði.

Lágmarksfjöldi samstarfsaðila eru tveir aðilar frá tveimur þátttökulöndum Erasmus+.

Einstaka stofnanir geta tekið þátt í mest fimm umsóknum um smærri samstarfsverkefni í hverjum umsóknarfresti, hvort heldur er sem umsækjendur eða samstarfsaðilar.

Eitt markmiða smærri samstarfsverkefna er að auðvelda aðgengi að Erasmus+ áætluninni fyrir nýliða og minni skóla, stofnanir og fyrirtæki. Einnig að styðja jöfn tækifæri fyrir alla, borgaralega þátttöku og evrópsk gildi í nærsamfélaginu.

Mat á verkefnisumsóknum bæði smærri og stærri samstarfsaðila er í samræmi við markmið og eðli samstarfsins. Miðað við markmið verkefnanna geta þau verið misstór og byggð upp á mismunandi hátt.

Hvernig er hægt að finna samstarfsaðila?

Umsækjendur verða sjálfir að finna sína samstarfsaðila og eru upplýsingar um þá hluti af umsókn. Mikilvægt er að vanda vel valið og kynna sér reynslu og sérþekkingu þeirra sem unnið verður með.

  • EPALE, vefgátt fullorðinsfræðslu í Evrópu býður upp á leit að samstarfsaðilum (partner search). Stofnanir eða félagasamtök innan fullorðinsfræðslu geta skráð sig á EPALE og komist í samband við áhugasama aðila í öðrum Evrópulöndum.
  • Tengslaráðstefnur eru skipulagðar af Landskrifstofum Erasmus+. Þessar ráðstefnur eru kynntar á heimasíðum Landskrifstofa jafnóðum og upplýsingar um þær berast.

Skilyrði úthlutunar

Áður en sótt er um þarf að ganga úr skugga um að stofnunin/samtökin sem sækja um styrkinn séu með svokallað OID númer. Til að sækja slíkt númer þarf EU-login aðgang. Hér eru nánari upplýsingar um hvernig sótt er um í Erasmus+ sem og ítarlegar leiðbeiningar um EU-login aðgang og OID númer. 

Þátttökulönd

Lögaðilar í þátttökulöndunum 32 í Erasmus+ áætluninni geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin 27, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Stofnanir og samtök frá öðrum löndum geta tekið þátt en ekki verið umsækjendur.

Forgangsatriði 2023

Öll samstarfsverkefni á sviði fullorðinsfræðslu þurfa að styðja við a.m.k. eitt af þeim forgangsatriðum sem ákveðin hafa verið fyrir fullorðinsfræðslu og/eða eitt forgangsatriði sem ákveðið hefur verið þvert á  öll skólastig/æskulýðsstarf. Þau snúa að inngildingu , grænum áherslum , stafrænum áherslum og virkri þátttöku








Þetta vefsvæði byggir á Eplica