Erasmus+ verkefnabankinn inniheldur upplýsingar um öll Erasmus+ verkefni sem er lokið.
Samkvæmt grein I.10.2. í Erasmus+ handbókinni ber verkefnisstjórum að skrá upplýsingar um verkefni og afurðir verkefna. Það er skilyrði fyrir afgreiðslu lokaskýrslu að búið sé að færa þessar upplýsingar inn í gagnabankann og skal það gert um leið og lokaskýrslu er skilað. Leiðbeiningar um skráningar eru í leiðbeiningarbæklingi sem er á forsíðu kerfisins. Verkefnisstjórar fá tölvupóst frá kerfinu með upplýsingum um aðgang, bæði við upphaf verkefna og á lokadegi.
Hlekkur á opinbert svæði verkefnabankans er hér: http://ec.europa.eu/programmes/erasmus-plus/projects. Innskráning er í gegnum "Project participants access" neðst á síðunni.