CEDEFOP ReferNet

Evrópumiðstöð fyrir þróun starfsmenntunar

ReferNet er samstarfsnet sem hefur það markmið að auka upplýsingasöfnun og miðlun upplýsinga um starfsmenntun í Evrópu.

Öll lönd Evrópska efnahagssvæðisins taka þátt í þessu samstarfi við aðildarríki Evrópusambandsins og hafa tengiliðir í hverju landi það hlutverk að afla upplýsinga um nýjungar í starfsmenntun í sínu land og að koma þeim til Cedefop. Stofnunin skrifar síðan heildarskýrslur um stöðu starfsmenntunar innan Evrópu og stefnumótun sem tengist starfmenntun á beinan eða óbeinan hátt. 

Kerfið var sett á stofn af CEDEFOP til að mæta vaxandi spurn eftir upplýsingum til að auðvelda samanburð á þróun og mismunandi stefnumótun aðildarríkjanna.

Cedefop er miðstöð Evrópusambandsins um þróun starfsmenntunar. Stofnunin veitir upplýsingar um og greiningu á starfsmenntakerfum í löndum álfunnar, stefnumótun, rannsóknir og útfærslu. Cedefop var sett á stofn árið 1975 og starfar eftir reglugerð EEC nr. 337/75.

Verkefni Refernets eru að safna upplýsingum um starfsmenntun í hverju landi og sjá um kynningu og dreifingu upplýsinga um árangur af störfum CEDEFOP. Einnig er stutt við kynningar- og útbreiðslustarf svo sem ráðstefnur og málþing sem varða starfsmenntun.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica