Fagaðila í fullorðinsfræðslu, hagsmunaaðila, símenntunarmiðstöðvar og stefnumótunaraðila.
EPALE er vefgátt þar sem fagfólk í fullorðinsfræðslu getur bloggað, deilt fréttum og auglýsingum um viðburði og sótt efni í gagnabanka.
EPALE vefgáttin veitir aðgang að lokuðum, gagnvirkum vefsvæðum þar sem hægt er að láta álit sitt í ljós, taka þátt í umræðum og eiga frumkvæði að umræðu um ýmis viðfangsefni.
Meginmarkmiðið með Epale er að efla samskipti fagfólks sem sér um fullorðinsfræðslu í Evrópu með það að markmiði að efla gæði formlegrar og óformlegrar menntunar fullorðinna.
Rannís er tengiliður fyrir EPALE á Íslandi (NSS – National Support Service).
Hlutverk RANNÍS er að miðla efni milli íslenskra og evrópskra fagaðila í fullorðinsfræðslu á vefgátt EPALE, hvetja fagaðila til að skiptast á skoðunum þar, skrá viðburði eða vekja athygli á því sem er til fyrirmyndar í fullorðinsfræðslu hér á landi.
Ef þú vilt miðla einhverju eða ert með hugmyndir um slíkt efni, hvetjum við þig til að senda okkur póst á epale@rannis.is
Þetta myndband má finna hér á ensku: Video on validation on prior learning
Viðtal við Önnu Margréti og Lindu um Epale
Þetta myndband má vinna hér á ensku: Interview with Anna Margrét and Linda.EPALE verkefnið er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Innihald þessa vefs endurspeglar eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á því hvernig af honum eru nýttar.