Ungt fólk á 18. aldursári. Einstaklingar sækja um þátttöku með því að skrá sig til leiks í sérstöku DiscoverEU happdrætti. Svara þarf nokkrum spurningum sem eykur vinningslíkur en dregið er út frá Brussel. DiscoverEU er framtak undir Erasmus+ áætluninni og Ísland tók fyrst þátt árið 2022. Síðan þá hefur verið dregið út tvisvar á ári og u.þ.b. 50 miðar fallið í skaut íslenskra ungmenna í hverjum útdrætti. Evrópusambandið sér um útdráttinn sjálfan og verða aðilar á þeirra vegum í sambandi við sigurvegarana.
Sækið um hér: https://youth.europa.eu/discovereu_en
Fyrir einstaklinga sem þurfa aukinn stuðning er sérstakur umsóknarfrestur einu sinni á ári, DiscoverEU Inclusion Action (sjá neðar á síðunni).
Happdrætti fyrir ungt fólk á 18. ári um lestarpassa sem hægt er að nota nánast ótakmarkað á evrópskum lestarteinum. Passinn gildir í 30 daga en innifaldir eru 7 ferðadagar á því tímabili. Hver einstaklingur ræður hvenær passinn er notaður á ferðatímabilinu og hversu lengi. Fólk stendur sjálft straum að kostnaði við að borga gistingu og mat en passanum fylgir afsláttarkort sem gildir á 40.000 stöðum vítt og breitt um Evrópu. Þá fá íslenskir þátttakendur einnig flug út.
Athugið að hægt er að sækja um sem hópur eða einstaklingar (allt að fimm saman). Hópurinn er þá dreginn út í heild sinni og fær ferðapassa. Einn ferðalangur leiðir hópinn, fyllir út umsókn og hinir sækja einnig um en tengja sig þeirri umsókn með kóða sem leiðtoginn fær.
Hér eru algengar spurningar um frestinn á heimasíðu Discover EU .
Opið er fyrir umsóknir tvisvar á ári (að vori og hausti) og eru umsóknarfrestir tilgreindir á heimasíðu DiscoverEU, á samfélagsmiðlum og á www.eurodesk.is.
Á slóðinni hér að ofan má einnig finna frekari upplýsingar. Auk þess er frekari upplýsingar að finna hér að neðan.
Umsækjendur þurfa að svara fimm spurningum, auk einnar aukaspurningar. Að svara öllum spurningum rétt eykur líkurnar. Ekki er hægt að finna eitt rétt svar við aukaspurningunni og er hún því hugsuð til gamans.
Í síðasta umsóknarferli sóttu um 144,038 ungmenni um passana víðs vegar um Evrópu (e. application). 36,318 fengu passa (e. selected participants). Frekari tölfræði hér .
Umsóknir fyrir inngildingarátak DiscoverEU, DiscoverEu Inclusion Action er samhliða umsóknum í önnur Erasmus+ verkefni í æskulýðshluta.
Auka sjálfstæði ungs fólks og kynna þeim fyrir þeim möguleikum sem Evrópa hefur upp á að bjóða.
Hugmyndin er sú að veita fleira ungu fólki tækifæri til að kynnast betur þvert á landamæri, tungumál og menningu og stuðla þannig að umburðarlyndi. DiscoverEU leit dagsins ljós árið 2018 og yfir 100.000 18 ára ungmenni tóku þátt í allra fyrsta úrdrættinum. 15.000 þeirra fengu 30 daga lestarpassa sem þau gátu notað nánast ótakmarkað á evrópskum lestarteinum. Fyrir mörg var þetta í fyrsta skipti sem þau ferðuðust til útlanda án fullorðinna og mörg sögðu frá því að hafa eignast nýja vini, orðið betri í tungumálum og fengið aukið sjálfstraust.
Einu sinni á ári er hægt að sækja um DiscoverEU Inclusion Action en það gerir fólki með ákveðnar hindranir mögulegt að fara í interrail ferðalag sem það gæti ekki gert án stuðnings. Þetta á t.d. við um fötluð ungmenni, ungt fólk með líkamlega eða andlega heilsufarsörðugleika eða fólk með fjárhagslega erfitt bakland. Styrkurinn sem er innifalinn í DiscoverEU Inclusion Action getur t.d. nýst til að hafa fylgdarmanneskju með í ferðinni eða standa straum af aukalegum kostnaði við að flytja búnað.
Ungt fólk sem fætt er á ákveðnu tímabili sem tiltekið er við hvern umsóknarfrest og verður 18 ára á tímabilinu þegar ferðast er.
Fresturinn í ár gildir fyrir ungmenni fædd á bilinu 1. júlí 2005 til 30. júní 2006 getur sótt um í þetta sinn. Síðustu ár hafa 200 íslensk ungmenni farið. Búist er við því að framtakið haldi áfram næstu árin og mun því næsti hópur vera yngri.
Ferðatímabilið eru 30 dagar einhvern tímann á tímabilinu 1. júlí 2024 til 30. september 2025.
Samtök, sveitarfélög, stofnanir og óformlegir hópar ungs fólks geta sótt um í DiscoverEU Inclusion Action. Hægt er að sækja um DiscoverEU Inclusion Action fyrir einstaklinga eða hópa allt að 5 saman (auk fylgdarfólks). Umsóknarferlið er öðruvísi og berast þessar umsóknir beint til Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi - ólíkt einstaklingsbundnu umsóknunum sem fara allar í sama pott. Athugið að óskað getur verið eftir vottorði til að rökstyðja þörfina á stuðningi.
Dregið er úr þátttakendum á handahófskenndan hátt. Ísland fær 50 miða (fjöldinn miðast við hlutfall íbúa m.v. heildarstærð pottsins). Þátttakendur geta aukið líkurnar með því að svara spurningunum fimm í leiknum rétt.
Landskrifstofa DiscoverEU er undir landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi. Landskrifstofa DiscoverEu skipuleggur undirbúningsfund með þátttakendum á ári hverju.