Ungt fólk á aldrinum 13-30 ára. Samtök, sveitarfélög, stofnanir og ungt fólk geta sótt um styrk. Hópur ungs fólks sem sækir um styrk þarf að samanstanda af a.m.k. 4 ungum einstaklingum.
Markmiðið með svona verkefnum er að hvetja ungt fólk til virkni og þátttöku. Í verkefnunum er hægt að vera með fjölbreytt óformlegt nám í t.d. vinnusmiðjur, umræðuhópa, vitundarvakningu o.fl. Verkefnin ættu að miða að því að efla persónulega og félagslega hæfni ungs fólks. Þannig efla þau gildi eins og samstöðu, lýðræði og vináttu.
Ungmennaskipti (Youth Exchanges) eru verkefni þar sem hópar ungs fólks; 13-30 ára frá tveimur eða fleiri Evrópulöndum hittast. Ungt fólk kynnist lífi og menningu jafningja þeirra í öðrum löndum Evrópu í verkefnum sem byggja á hugmyndafræðinni um óformlegt nám. Einnig er hægt að sækja innblástur fyrir áherslu í verkefnum til æskulýðsmarkmiða ESB: European Youth Goals.
Sótt er um rafrænt á Erasmus+ og ESC torginu. Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið á síðunni Leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
Veita ungu fólki tækifæri til almennrar þátttöku í lýðræðislegu samfélagi. Sérstök áhersla er á inngildingu og fjölbreytileika.
Helstu forgangsatriði snúa að því að tryggja aðgengi allra að áætluninni, umhverfisvænt alþjóðastarf, aukna stafræna þróun og færni, sem og sameiginleg gildi og borgaralega þátttöku.
Samtök, stofnanir, sveitarfélög
Lögaðilar og ungmennahópar í þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin; Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Mögulegt er að vinna með aðilum í öðrum löndum.
Styrkur vegna inngildingar - 100% raunkostnaður
Hér er átt við aukinn stuðning fyrir þátttakendur til jafnrar þátttöku sem getur t.d. falist í því að bæta kostnað ferða og uppihalds fyrir sérfræðinga eins og fylgdarmanneskjur, iðju-/þroskaþjálfa, sálfræðinga, túlka o.fl.
Hér er reiknivél fyrir vegalengdir
Vegalengd |
Hefðbundinn |
Grænn |
10 – 99 km |
€ 23 |
€ 56 |
100 – 499 km |
€ 211 |
€ 285 |
500 – 1999 km |
€ 309 |
€ 417 |
2000 – 2999 km |
€ 395 |
€ 535 |
3000 – 3999 km |
€ 580 |
€ 785 |
4000 – 7999 km |
€ 1188 |
|
8000 km og lengra |
€ 1735 |
Umsækjendur verða sjálfir að finna sína samstarfsaðila og eru upplýsingar um þá hluti af umsókn. Mikilvægt er að vanda vel valið á samstarfsaðilum og kynna sér þeirra reynslu og fagsvið.
Tengslaráðstefnur og námskeið eru skipulögð af landskrifstofum Erasmus+. Þar hefur reynst vel að kynnast samstarfsaðilum. Þessi námskeið eru kynnt á heimasíðum landskrifstofa og SALTO-Youth jafnóðum og upplýsingar um þær berast .
Áður en sótt er um þarf að ganga úr skugga um að samtökin/stofnunin/fyrirtækið sem sækir um styrkinn sé með svokallað OID númer. Til að sækja slíkt númer þarf EU-login aðgang. Hér eru nánari upplýsingar um hvernig sótt er um í Erasmus+ sem og ítarlegar leiðbeiningar um EU-login aðgang og OID númer.
Athugið að styrkurinn er ekki hugsaður fyrir námsferðir, hagnaðardrifin ungmennaskipti, verkefni sem falla undir túrisma, þátttöku á hátíðum, ferðalag sem er frí, keppnisferðir, lögbundna fundi eða námskeið fyrir ungmenni á vegum fullorðinna.
Landskrifstofa mælist til þess að styrkhafar í Námi og þjálfun í æskulýðshluta Erasmus+ gangi úr skugga um að þau sem starfa með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri innan ramma verkefnisins hafi ekki hlotið refsidóma vegna ofbeldisbrota, ávana- og fíkniefna eða kynferðisbrota.