Samtök, sveitarfélög og aðrir sem starfa innan æskulýðsvettvangsins geta sótt um styrki til að stuðla að nýbreytni og framþróun í æskulýðsstarfi.
Samstarfsverkefni veita samtökum, sveitarfélögum og öðrum aðilum tækifæri til að öðlast reynslu af alþjóðlegu samstarfi og efla hæfni sína. Einnig geta verkefnin snúist um að þróa eða yfirfæra aðferðir eða leiðir í æskulýðsstarfi þar sem áhersla er lögð á nýbreytni og gæði.
Styrkt verkefni skulu taka mið af stefnumörkun Evrópusambandsins í æskulýðsstarfi. Þau geta verið mismunandi að stærð og gerð og geta meðal annars snúið að því að auka gæði í starfi með ungu fólki.
Í boði eru tvær tegundir verkefna:
Sótt er um rafrænt á Erasmus+ og ESC torginu. Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið á síðunni Leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
Verkefnum sem styrkt verða er sérstaklega ætlað að styðja við áherslur Evrópusambandsins á sviði menntunar og æskulýðsstarfs.
Markmið samstarfsverkefna (Cooperation Partnerships og Small-Scale Partnerships)
Að auka gæði starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu og deila nýjungum með öðrum, þvert á fag- og starfsgreinar.
Að styrkja stofnanir sem vinna þvert á landamæri og milli mismunandi skólastiga og fagreina.
Að mæta sameiginlegum þörfum og forgangsatriðum á sviði menntunar, þjálfunar og æskulýðsstarfs.
Að stuðla að framförum (hjá einstaklingum, stofnunum eða innan einstakra geira) sem leitt geta til þróunar og nýrra aðferða sem nýtast aðilum af mismunandi stærð og gerð.
Í minni samstarfsverkefnum (Small-Scale Partnerships) er að auki stefnt að eftirfarandi atriðum:
Öll samstarfsverkefni innan æskulýðsvettvangsins þurfa að styðja við a.m.k. eitt af þeim forgangsatriðum sem ákveðin hafa verið fyrir æskulýðsstarf og/eða eitt forgangsatriði sem ákveðið hefur verið þvert á öll skólastig/æskulýðsstarf.
Fyrir umsóknarfrest 2023 hafa verið skilgreind eftirfarandi forgangsatriði fyrir samstarfsverkefni á sviði æskulýðsstarfs:
Athugið að nauðsynlegt er að skoða vel hvert forgangsatriði í handbók Erasmus+ þar sem þau eru útskýrð nánar.
Almenn forgangsatriði Erasmus+ áætlunarinnar sem gilda um öll skólastig og æskulýðsstarf (horizontal priorities) snúa að inngildingu , grænum áherslum , stafrænum áherslum og virkri þátttöku.
Einungis lögaðilar geta sótt um styrki til að vinna samstarfsverkefni. Áætlunin veitir aðilum sem starfa innan æskulýðsvettvangsins, samtökum, stofnunum, fyrirtækjum, opinberum aðilum, og öðrum mögulegum samstarfsaðilum tækifæri til að vinna verkefni með æskulýðssamtökum, stofnunum og fyrirtækjum í öðrum löndum í því skyni að auka gæði og samstarf milli þeirra sem starfa innan æskulýðsvettvangsins.
Lögaðilar í þátttökulöndunum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Stofnanir og samtök frá öðrum löndum geta tekið þátt en ekki verið umsækjendur
Styrkir til samstarfsverkefna eru veittir í formi fastrar upphæðar (lump sum) og umsækjendur geta sótt um eftirfarandi upphæðir
Verkefnaflokkur | Styrkupphæð (lump sum) |
Smærri samstarfsverkefni (Small scale partnerships) |
30.000 EUR |
60.000 EUR | |
Stærri samstarfsverkefni (Cooperation Partnerships) |
120.000 EUR |
250.000 EUR | |
400.000 EUR |
Allir verkefnastyrkir Erasmus+ eru stuðningur og gera ráð fyrir mótframlagi aðila verkefnisins. Í umsókninni er ekki farið fram á að mótframlag sé útskýrt í smáatriðum heldur þarf áætlaður kostnaður við framkvæmd verkefnisins að vera hærri en styrkupphæðin sem sótt er um.
Við gerð fjárhagsáætlunar ber að hafa í huga að ef hún er metin óraunhæf verður að hafna umsókninni. Við afgreiðslu umsókna er ekki hægt að lækka styrkupphæð sem sótt er um.
Styrkupphæðin snýr að þeim verkþáttum sem leyfilegir eru í Erasmus+ samstarfsverkefnum:
Stærri samstarfsverkefni (Cooperation Partnerships) geta varað í 12 – 36 mánuði
Lágmarksfjöldi samstarfsaðila eru 3 aðilar frá þremur þátttökulöndum Erasmus+. Aðilar frá öðrum löndum geta tekið þátt en ekki verið umsækjendur. Undantekning er Hvíta Rússland en aðilar þaðan geta ekki tekið þátt.
Styrkt verkefni skulu taka mið af stefnumörkun Evrópusambandsins í æskulýðsstarfi og geta m.a. snúið að því að auka gæði í starfsemi samstarfsaðilanna og aukinni hæfni til alþjóðlegrar samvinnu. Þá skulu verkefnin stuðla að nýjum lausnum og aðferðum á sviði æskulýðsmála.
Smærri samstarfsverkefni (Small-Scale) geta varað í 6 - 24 mánuði.
Lágmarksfjöldi samstarfsaðila eru tveir aðilar frá tveimur þátttökulöndum Erasmus+.
Eitt markmiða smærri samstarfsverkefna er að auðvelda aðgengi að Erasmus+ áætluninni fyrir nýliða og minni skóla, stofnanir og fyrirtæki. Einnig að styðja jöfn tækifæri fyrir alla, borgaralega þátttöku og evrópsk gildi í nærsamfélaginu.
Mat á verkefnisumsóknum bæði smærri og stærri samstarfsverkefna er í samræmi við markmið og eðli samstarfsins. Miðað við markmið verkefnanna geta þau verið misstór og byggð upp á mismunandi hátt.
Umsækjendur verða sjálfir að finna sína samstarfsaðila og eru upplýsingar um þá hluti af umsókn. Mikilvægt er að vanda vel valið og kynna sér reynslu og sérþekkingu þeirra sem unnið verður með.
Áður en sótt er um þarf að ganga úr skugga um að samtökin/stofnunin/fyrirtækið sem sækir um styrkinn sé með svokallað OID númer. Til að sækja slíkt númer þarf EU-login aðgang. Hér eru nánari upplýsingar um hvernig sótt er um í Erasmus+ sem og ítarlegar leiðbeiningar um EU-login aðgang og OID númer.