Youthpass
Youthpass er tæki sem nýtt er til þess að staðfesta þátttöku og meta lærdómsreynslu í æskulýðsverkefnum Erasmus+ og European Solidarity Corps. Youthpass er gefinn út af þeim sem skipuleggja verkefnin en byggir á sama formi og SALTO-Youth hefur þróað.
Búðu til Youthpass
Staðfesting á þátttöku
Helstu upplýsingar um þátttakandann og verkefnið koma fram á Youthpass. Hlutverk verkefnatjórans í Erasmus+ verkefninu er að skrá þessar upplýsingar í Youthpass kerfinu. Youthpass getur meðal annars verið gagnlegt til þess að tilgreina óformlegt nám fram á ferilskrá.
Hér getur þú séð eintak af Youthpass fyrir þátttöku í ungmennaskiptaverkefni.
Mat á lærdómsreynslu
Þátttakendur geta metið eigin lærdóm og skrifað matið inn í Youthpass. Það er hlutverk verkefnastjóra að bjóða og kenna þátttakendum að nýta sér slíkt sjálfsmat. Matinu er skipt niður í átta færniþætti sem tengdir eru og byggja á hver öðrum:
- Móðurmál
- Erlend tungumál
- Stærðfræði og vísindi
- Tölvulæsi
- Skipulagning á eigin námi
- Tengslamyndun, samskipti og samfélagsvitund
- Frumkvæði, verkefnastjórnun og nýsköpun
- Menning og listir
Frekari upplýsingar:
Lestu meira um lykil-færniþættina á bæði
íslensku og
ensku.
Hér eru nokkrar tegundir af
upplýsingabæklingum sem verkefnastjórar geta prentað út og nýtt sér þegar þeir kynna Youthpass fyrir viðeigandi þátttakendum, þ.e. ungu fólki, starfsfólki og/eða sjálfboðaliðum.
Nálgastu eintak af Youthpass fyrir þátttöku í starfsþjálfunarverkefni þar sem sjálfsmati er bætt við.
Hér er að finna handbækur sem geta hjálpað verkefnastjórum að vinna með Youthpass og viðurkenningu á óformlegu námi.
Ný stefna um Youthpass var gefin út í september 2021 og má nálgast hana hér.