Umsóknafrestur í æskulýðshluta Erasmus+ framlengdur til 7. maí

16.3.2020

Vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar í Evrópu og þeirra miklu áhrifa sem hún hefur á umsækjendur í Erasmus+ hefur Framkvæmdastjórn ESB ákveðið að framlengja umsóknarfrest fyrir alla flokka í æskulýðshluta Erasmus+ og European Solidarity Corps frá 30. apríl nk. til 7. maí kl. 10 að íslenskum tíma.

Við þær aðstæður sem hafa skapast vegna veirunnar getur verið erfitt fyrir umsækjendur að afla mandate-samninga við erlenda samstarfsaðila. Því hefur verið ákveðið að hægt sé að senda inn umsóknir án þess að mandate-samningar fylgi með. Hins vegar þurfa umsækjendur að skila þessum gögnum inn til Landskrifstofu á seinni stigum, eða áður en styrksamningur er undirritaður ef umsóknin hlýtur samþykki.

Umsækjendum er bent á að senda fyrirspurnir vegna umsóknarferlisins í tæka tíð fyrir frestinn.

Spurt og svarað um Covid-19









Þetta vefsvæði byggir á Eplica