Á Evrópuári unga fólksins er sjónum beint að valdeflingu og virkri þátttöku yngri kynslóðarinnar í samfélaginu.
Lesa meiraDagana 7. og 8. apríl fór fram ráðstefna í Stokkhólmi undir yfirskriftinni Inclusive Mobility for Higher Education og Landskrifstofunni gafst kostur á að senda tvo fulltrúa frá Íslandi til þátttöku. Inngilding er eitt af forgangsatriðum Erasmus+ og mikilvægt að finna leiðir til að takast á við þær hindranir sem nemendur mæta varðandi þátttöku í áætluninni.
Jafningjafræðsla eflir ungt flóttafólk!
Maímánuður er helgaður fjölbreytileikanum í Evrópu. Því er tilvalið að nýta tækifærið og varpa ljósi á framúrskarandi Evrópuverkefni sem fór fram hér á Íslandi á vormánuðunum. Verkefnið fól í sér að skapa tengsl milli ungra Íslendinga og ungs fólks sem hefur komið til Íslands sem flóttafólk á síðustu misserum. Unga fólkið sem hópurinn hitti voru á aldrinum 14-20 ára og voru þau frá löndum eins og Afganistan, Palestínu, Íran og Venesúela.
Lesa meiraEvrópuáætluninni European Solidarity Corps er ætlað að skapa tækifæri fyrir ungt fólk að hafa jákvæð áhrif á evrópskt samfélag og sýna samstöðu í verki. Nýverið úthlutaði Landskrifstofa um 240.000 evrum til 11 nýrra ESC-verkefna, sem öll stefna að því að takast á við áskoranir samtímans.
Ráðstefnan Geðrækt er málið! var haldin á Grand Hótel þriðjudaginn 3. maí sem hluti af Erasmus+ verkefninu BUILD. Í verkefninu hafa Píeta samtökin og Hafnafjarðarbær unnið með samstarfsaðilunum Athena frá Írlandi og Social Innovation Fund frá Litháen.
Lesa meiraFerðatöskur landsmanna hafa ef til vill staðið óhreyfðar í nokkuð langan tíma en nú má með sanni segja að hugurinn leiti út fyrir landsteinana. Samtök og stofnanir á sviði æskulýðs- og menntamála hafa undanfarna mánuði verið að þróa metnaðarfull verkefni til náms og þjálfunar á erlendri grundu. Fyrstu úthlutanir ársins lofa góðu því Landskrifstofa hefur veitt tæplega 4,7 milljónir evra í Erasmus+ styrki það sem af er ári.
Lesa meiraVissir þú að ungt fólk hefur ýmis tækifæri til að fá starfsreynslu hjá evrópskum og alþjóðlegum stofnunum? Í tilefni af Evrópudeginum 9. maí og Evrópuári unga fólksins langar okkur á Landskrifstofu Erasmus+ og European Solidarity Corps að kynnast betur ungum Íslendingum sem starfa á fjölbreyttum vettvangi í Brussel í Belgíu.
Lesa meiraEftir tvö ár af heimsfaraldri er kominn tími til að horfa björtum augum fram á veginn. Til að undirstrika mikilvægi þess að ungt fólk taki þátt í að móta evrópskt samfélag hefur Evrópusambandið ákveðið að tileinka árið 2022 ungu kynslóðinni, framtíðarsýn hennar og þeim málefnum sem snerta hana mest. Árið 2022 er árið sem raddir ungs fólks fá að heyrast.
Lesa meirajan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.