Jákvæðni og eldmóður í stefnumótun um nám fullorðinna

1.2.2018

  • Þátttakendur grúfa sig yfir stefnumótunarvinnuna.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið óskaði nýlega eftir tilnefningum frá 17 hagsmunaaðilum sem koma að námi fullorðinna í samráðshóp sem ætlað er að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun á þeim vettvangi. Þetta verkefni er unnið með styrk frá Erasmus+ áætlun ESB.

Fyrsti fundur hópsins var haldinn 26. janúar og er skemmst frá því að segja að þátttakendur voru einstaklega áhugasamir og jákvæðir og tóku þátt í starfinu af lífi og sál. Til þeirra voru gerðar talsverðar kröfur, t.d. að koma með skýra sýn á menntun fullorðinna árið 2030 og stika út leiðina þangað.

Fólk sem kom úr mjög ólíkum áttum þurfti þannig að ná fram sameiginlegri sýn sem allir í hópnum gátu sæst á. Hugtök eins og sveigjanleiki, opinn aðgangur fyrir alla og þarfir atvinnulífsins voru endurtekið sett fram en einnig var oft nefnt að þörf væri á fræðslu á vinnustöðum, vottun þrepaskiptra námsleiða og að aðgangur ætti að vera gjaldfrjáls.  

Næsti fundur hópsins verður haldinn 6. febrúar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica