International Tool Fair á Íslandi

29.5.2024

International tool fair (ITF) verður haldið í 18. sinn dagana 4.-8. nóvember 2024 og að þessu sinni í Reykjavík. ITF er tengslaviðburður um verkfæri til náms í formlegu og óformlegu námi og í ár er þemað stafræn umbreyting.

Viðburðurinn á við alla hluta Erasmus+ og við hvetjum öll sem hafa áhuga að sækja um en frestur er til 2. júní næstkomandi. Fyrir starfsfólk á æskulýðsvettvanginum er hægt að sækja um þátttöku hér:  https://bit.ly/InternationalToolFair

Starfsfólk sem fellur undir menntahluta Erasmus+ sækir um hér:  https://bit.ly/InternationalToolFair_menntahluti

Markmið:

  • Að skoða fjölbreytt stafræn viðfangsefni og nálganir í vinnustofum.
  • Að fá tækifæri til að ræða við fólk af sama vettvangi um stafræn tól sem nota megi í formlegu og óformlegu námi. 
  • Að heyra frá fólki sem skarað hefur fram úr á sínu sviði og notar stafrænar lausnir á nýstárlegan hátt.
  • Að fá innblástur og tengja nýja tækni, aðferðir og venjur við eigið starf. 
  • Að ígrunda stafrænar venjur, rannsóknir og hæfni þvert á alla flokka mennta- og æskulýðsmála.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica