Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýsir umsóknarfresti fyrir árið 2025 í sjálfboðaliðaáætluninni European Solidarity Corps (ESC). ESC áætlunin styður ungt fólk sem vill fara erlendis í sjálfboðastarf eða framkvæma samfélagsverkefni í eigin nærumhverfi.
Þann 29. nóvember síðastliðinn voru umsóknarfrestir til þátttöku í ESC verkefnum fyrir árið 2025 gefnir út.
ESC gerir samtökum, fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi kleift að fá til sín sjálfboðaliða á aldrinum 18-30 ára í tvær vikur til 12 mánuði til að sinna verkefnum sem samræmast áherslum áætlunarinnar.
Sjálfboðaliðar hafa einnig tækifæri á að fara erlendis í sjálfboðaliðastarf eða setja á fót samfélagsverkefni sem hafa jákvæð áhrif á eigið nærumhverfi.
Sjálfboðaliða- og samfélagsverkefnin þurfa að byggja á einhverjum af megináherslum áætlunarinnar sem eru:
Sjálfboðaliðaverkefni: 20. febrúar 2025. (ATH! Aðeins einn umsóknarfrestur verður á árinu fyrir sjálfboðaliðaverkefni)
Samfélagsverkefni: 20. febrúar, 7. maí og 1. október 2025
Árið 2025 nema styrkir í ESC áætluninni alls 166 milljónum evra. Á árinu verða rúmlega 900 þúsund evrur til úthlutunar fyrir verkefni sem fara fram á Íslandi, eða um 138 milljónir íslenskra króna. Sjálfboðaliðar munu fá tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem hafa grænar áherslur, áherslur á stafræna færni, inngildingu eða lýðræðislega þátttöku. Einnig verður haldið áfram að veita aðstoð þeim sem flýja stríðsátök í Úkraínu.
Til þess að geta tekið á móti sjálfboðaliðum þurfa samtök og stofnanir að sækja um gæðavottun (e. Quality label), sem að staðfestir að umsækjandi hafi getu og burði til að framkvæma gæðaverkefni sem ríma við markmið og skilyrði áætlunarinnar.
Ungt fólk á aldrinum 18-30 ára sem er skráð í European Solidarity Corps Portal getur sótt um styrk til þess að taka þátt í bæði sjálfboðaliða- og samfélagsverkefnum.
Starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi, sem er jafnframt Landskrifstofa fyrir European Solidarity Corps, hvetur umsækjendur hér á landi til að kynna sér vel þá styrkjamöguleika sem í boði eru. Þau sem hafa spurningar um umsóknarferlið eru eindregið hvött til að hringja eða skrifa tölvupóst til viðkomandi verkefnastjóra. Enn fremur eru umsækjendur hvattir til að taka þátt í hinum ýmsu kynningarviðburðum sem Landskrifstofan mun standa fyrir víða um land og á netinu á komandi vikum og mánuðum. Þeir verða nánar auglýstir hér á síðunni og í fréttabréfi okkar, sem við mælum með að allt áhugasamt fólk um Evrópusamstarf gerist áskrifendur að.
Nánari upplýsingar:
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.