Opið hús hjá Landskrifstofu Erasmus+ og Nordplus

14.1.2020

  • Mynd-jpf

Mánudaginn 20. janúar 2020 kl. 13-16 verður OPIÐ HÚS hjá Rannís, Borgartúni 30, vegna umsóknarfrests náms- og þjálfunarverkefna Erasmus+ og samstarfsverkefna Nordplus.

Fyrir hverja?

Umsækjendur Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefna sem stefna að því að senda inn umsókn 5. febrúar næstkomandi og Nordplus samstarfsverkefna sem stefna að því að senda inn umsókn 3. febrúar næstkomandi.

Við hvetjum þá sem eru komnir af stað með umsókn og ætla að sækja um að mæta með tölvuna sína og fá aðstoð ef þörf krefur. Hægt verður að fá aðstoð við umsóknarkerfið og spyrja spurninga er lúta að umsóknarferlinu og gæðum verkefnahugmynda. 

Minnum á að umsóknarfrestur Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefna er 5. febrúar og Nordplus samstarfsverkefna er 3. febrúar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica