Landskrifstofa Erasmus+ menntaáætlunar ESB á Íslandi auglýsir eftir þremur þátttakendum á tengslaráðstefnuna Long-term Study Mobility (School Exchange Partnerships). Ráðstefnan verður haldin í Santa Cruz de Tenerife, á Spáni, dagana 24.-27. október nk.
Tengslaráðstefnan er ætluð aðilum á grunn- og framhaldsskólastigi og er markmið hennar það að þátttakendur þrói og myndi hugmyndir að samstarfsverkefnum á sviði nemenda- og kennaraskipta með öðrum evrópskum skólum á þeim skólastigum.
Leitað er að þátttakendum frá stofnunum sem stefna að slíkum verkefnum, s.s. skólastjórum eða -kennurum, skólaskrifstofum o.s.frv. sem eru tilbúnir til að stofna til nýrra Erasmus+ samstarfsverkefna tengd þema ráðstefnunnar.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um nafn, stofnun og stöðu innan skóla. Einnig upplýsingar um reynslu umsækjanda og verkefnishugmynd, ef hún er fyrir hendi. Rík áhersla er lögð á myndun Erasmus+ verkefna og að þátttakendur fari sem fulltrúar sinna skóla/stofnana/samtaka og séu opnir fyrir að taka þátt í slíkri vinnu.
Við úthlutun styrkja er meginreglan að ekki fari nema einn frá hverjum skóla.
Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi veitir styrk fyrir 90% af upphæð ferðakostnaðar. Þátttökugjald greiðist af landskrifstofunni á Spáni og inniheldur gistinætur á ráðstefnutíma (þrjár nætur), fæði og annað uppihald sem ráðstefnunni tengist.
Umsóknarfrestur er mánudagurinn 24. september nk. kl. 16:00.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.