Við erum að leita að matsmönnum!

20.4.2021

  • Glenn-carstens-peters-RLw-UC03Gwc-unsplash

Rannís óskar eftir sérfræðingum til að meta umsóknir í mennta- og æskulýðshluta Erasmus+. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

 

Óskað er eftir einstaklingum sem hafa:

  • Þekkingu á íslensku æskulýðsstarfi eða menntakerfi á sviði háskóla, leik-, grunn- og framhaldsskóla, starfsmenntunar og fullorðinsfræðslu.
  • Einnig reynslu af fjölþjóðlegu samstarfi og verkefnastjórnun, ásamt skilningi á stefnumiðum Evrópusambandsins um menntun og æskulýðsstarf.

Leitað er að matsmönnum til að meta umsóknir í tveimur verkefnaflokkum; Nám og þjálfun og Samstarfsverkefni.

Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.

Starf matsmanna er verkefnatengt og tímabundið í tengslum við umsóknafresti Erasmus+áætlunarinnar.

Áhugasamir eru beðnir um að senda inn umsókn og ferilskrá í tölvupósti eigi síðar en 30. apríl á erasmusplus@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica