Evrópusambandið hefur tilkynnt um umsóknarfresti Erasmus+ sem verða í boði árið 2025. Alls munu fimm milljarðar evra renna til ferða og samstarfs í menntamálum, æskulýðsmálum og íþróttum á árinu, þar af hátt í 16 milljónir evra sem renna til Íslands með beinum hætti.
Þetta er í fimmta sinn sem auglýst er eftir umsóknum í Erasmus+ á tímabilinu og aldrei hefur jafn miklu fjármagni verið varið í styrki. Aukningin er mest í verkefnum til náms og þjálfunar, en þau styðja nemendur, kennara, starfsfólk og ungmenni við að afla sér reynslu og þekkingar á erlendri grundu. Samstarfsverkefni leiða saman stofnanir og samtök í ólíkum löndum til að vinna að forgangsatriðunum fjórum: inngildingu, sjálfbærni, stafrænni þróun og virkri þátttöku í samfélaginu.
Erasmus+ er ætlað að styðja þátttökulöndin við að byggja upp evrópskt menntasvæði og uppfylla æskulýðsstefnu Evrópusambandsins til ársins 2027. Mikil áhersla er lögð á hlutverk Erasmus+ við að efla samevrópsk gildi, svo sem mannréttindi og mannlega reisn, frelsi, lýðræði og jafnrétti.
Íslenska Landskrifstofan mun geta styrkt verkefni um rúmlega 11,5 milljónir evra í menntahluta Erasmus+ og 3,5 milljónir evra í æskulýðshlutanum á árinu 2025.
Starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi hvetur umsækjendur hér á landi til að kynna sér vel þá styrkmöguleika sem í boði eru. Sérstaklega skal bent á ráðleggingar Landskrifstofu varðandi val á samstarfsaðilum.
Minnt er á fjöldatakmarkanir sem eru í gildi í samstarfsverkefnum. Áfram gildir sú regla að einstaka stofnanir geta tekið þátt í mest 10 umsóknum um stærri samstarfsverkefni, að undanskildum háskólahluta. Í smærri samstarfsverkefnum tekur gildi sú regla að einstaka stofnanir geta aðeins tekið þátt í fimm umsóknum í hverjum fresti.
Umsækjendur eru hvattir til að huga að inngildingu í verkefnum sínum og minnt er á að hægt er að sækja um inngildingarstyrki fyrir ýmsum ólíkum þáttum til að tryggja jafnt aðgengi að verkefnum.
Þau sem hafa spurningar um umsóknarferlið eru eindregið hvött til að hringja eða skrifa tölvupóst til viðkomandi verkefnastjóra. Ennfremur eru umsækjendur hvattir til að taka þátt í hinum ýmsu kynningarviðburðum sem Landskrifstofa stendur fyrir víða um land og á netinu á komandi vikum og mánuðum.
Umsóknareyðublöð munu birtast á Erasmus+ torginu og stefnt er að því að þau séu öll aðgengileg þar fyrir nóvemberlok.
Nánari upplýsingar
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.