Erasmus dagar 2024

7.10.2024

Hin árlega viðburðaröð Erasmus dagar eða #ErasmusDays er á næsta leyti og fer hún fram í áttunda skiptið dagana 14. til 19. október. Um er að ræða sex daga tímabil þar sem athygli er vakin á Erasmus+ starfi og árangri í samstilltu átaki um alla Evrópu.

Á þessu tímabili verður Erasmus+ áætluninni fagnað og hundruð viðburða munu eiga sér stað um alla álfuna. Þessir dagar eru frábært tækifæri til þess að skipuleggja eða taka þátt í fjölbreyttu kynningarstarfi, deila reynslu og læra meira um Erasmus+.

Landsskrifstofan mun standa aftur fyrir spurningakeppni eins og í fyrra, með Evrópuþema í Stúdentakjallaranum, miðvikudaginn 16. október kl. 18:00.

Við viljum hvetja: skóla, sveitarfélög, stofnanir, frístundamiðstöðvar og öll þau sem hafa tekið þátt í Erasmus+ að nýta tækifærið og vera sýnileg á samfélagsmiðlum með einum eða öðrum hætti.

Hérna er hægt að skrá viðburði.

Nánari upplýsingar veitir kynningarstjóri Erasmus+ á Íslandi.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica