Spurningakeppni tengd Erasmus+ dögum #erasmusdays2024

7.10.2024

Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi stendur fyrir spurningakeppni með Evrópuþema vegna Erasmus+ daga og verður hún haldin á Stúdentakjallaranum miðvikudaginn 16. október.

Í boði verða drykkir meðan birgðir endast auk veglegra vinninga. Dagskráin hefst klukkan 18 og lýkur um 20.

Allar frekari upplýsingar má finna á Facebook viðburðinum .

Ætlunin er að vekja athygli á öllum þeim möguleikum sem standa ungu fólki til boða í gegn um evrópskt samstarf. Þar má nefna skiptinám, sjálfboðaliðastörf, samfélagsverkefni, starfsnám og svona mætti lengi telja.

Fulltrúar frá Landskrifstofu og European Solidarity Corps verða á svæðinu til að svara öllum spurningum sem viðstaddir hafa um evrópskt samstarf.

Erasmus dagar eru haldnir ár hvert en á þeim er hvers kyns Erasmus+ samstarfi fagnað. Dagarnir eru í þetta sinn haldnir frá 14. til 19. október.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica